verund-titill1.PNG - 7047 Bytes

 

 

 

 

lucy-but-tilbaka.png - 1510 Bytes
lucy-but-tiladalsidu.png - 1759 Bytes

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

lucy-but-tilbaka.png - 1510 Bytes
lucy-but-tiladalsidu.png - 1759 Bytes

Þar er hvorki dómari né kviðdómur

Ávarp frá bróður Bernard, í gegnum miðilinn Lucy Hale, árið 1987.


Gott kvöld kæru vinir.

Það er mér mikið ánægjuefni að vera hér á meðal ykkar, og skilja eftir hjá ykkur fáein umhugsunarefni, sem gætu orðið ykkur til hjálpar á ferð ykkar í gegnum lífið.

Þið hafið komið á þessa samkomu til þess að tengjast andaheiminum, leita að svolítið meiri fróðleik um það sem er að gerast, bæði í ykkar heimi og þeim fyrir handan.

Hafið þið nokkurn tíma staldrað við til þess að hugsa um hvað nákvæmlega á sér stað á þeirri stundu þegar þið skiljið líkama ykkar eftir og flytjið yfir til næsta lífs? Kannski er mikilvægast fyrir ykkur að vita að þið munið ekki þurfa að koma fyrir neinn dómara eða kviðdóm, ykkur mun ekki verða gert að horfa á dáðir ykkar og mistök svo vega megi hvort þið verðið dæmd til eilífrar pyntingar eða dvalar í himnaríki. Þið vaknið ekki upp við það að vera skyndilega orðin íklædd hvítum skikkjum, með vængi og að spilandi á hörpur. Þær hugmyndir hafið þið skilið eftir.

Þegar þið genguð á hönd spíritismanum þá áttuðuð þið ykkur á því, ef til vill í fyrsta sinn, að lífið heldur áfram og að þið eruð andar hér og nú. Þið voruð andar áður en þið komuð inn í jarðsviðið og þá íklæddust þið jarðneskum líkama, efnislíkama úr ýmsum efnum, frumum sem skiptust og uxu, og með líkama ykkar fenguð þið ýmislegt í arf í gegnum genin.

Á meðan þið eruð í þessum sérstaka líkama, á meðan þið dveljið á jarðsviðinu, þá þurfið þið að sinna þeim hlutum og hlutverkum sem jarðsviðinu tilheyra, þið verðið að ganga í gegnum þá reynslu. Jafnvel þó að þið vitið að þið eruð eilíf og að þið eruð andar, þá hljótið þið, vegna þess að þið eruð í efnislíkama, að vera háð takmörkunum efnisins, hlutum jarðarinnar. Þið vitið að þegar þið yfirgefið þetta jarðsvið þá munið þið fara inn á annað tilverusvið og, eins og við sögðum hér í upphafi, þá verður þar ekkert dómarasæti að finna, aðeins þá dóma sem munu verðir felldir af ykkur sjálfum.

Eitt af því fyrsta sem fyrir ykkur mun bera þegar yfir kemur, er að þið munið geta séð allt ykkar jarðlíf. Þið munið ekki aðeins sjá hvar þið vékuð af leið, heldur líka allt það fólk sem þið hafið hjálpað.

Það verður enginn dómur felldur, nema sá sem þið ákveðið sjálf að fella. Kannski hefur ykkur mistekist eitthvað í lífinu, og það væri nú eitthvað skrítið ef það hefði ekki gerst, vegna þess að á meðan þið eruð takmörkuð af hömlum efnislíkamans þá eruð þið háð mannlegum breyskleika.

Það mun ekki skipta neinu máli þannig séð, hversu miklar dáðir þið hafið drýgt eða syndgað á liðinni tíð, svo fremi að þið gerið ykkur grein fyrir hvað þið hafið gert, hvar ykkur hefur borið af leið, hvar ykkur hefur tekist að halda ykkur á réttri leið. Ykkur mun verða veitt tækifæri til þess að leiðrétta það sem miður fór.

Á meðan þið eruð hér á jarðsviðinu þá munið þið finna að þið eruð ekki fullkomin, að þið gerið stundum það sem þið vitið að er ekki rétt, gerið og segið hluti, sem þegar þið leiðið hugann betur að þeim, voru ekki nákvæmlega réttir. Ef ykkur tekst ekki að leiðrétta misfellurnar hérna megin þá verður ykkur gefið tækifæri til þess að gera það þegar þið komið yfir í næsta líf.

Þið hafið alltaf möguleika á að gera góða hluti, veita huggun þar sem sorg ríkir og örvænting, möguleika á að hlusta á það sem aðrir þurfa að tjá sig um. Allt eru þetta eiginleikar jarðlíkamans og sem þið getið nýtt ykkur til þess að starfa með fyrir andann.

Það væri ekki skynsamlegt fyrir ykkur að vera alltaf að hugsa um andaheiminn, ekki heldur að eyða öllum tíma ykkar í hugleiðslu eða að sitja í þjálfunar- og bænahringjum dag eftir dag. Þið verðið að horfast í augu við jarðneska hluti, og gera ykkur grein fyrir þeim með því að horfast í augu við þá, upplifa það sem lífið hefur upp á að bjóða á jarðsviðinu. Með því þroskið þið sál ykkar, byggið upp persónuleikann og það er mikilvægasta ætlunarverk ykkar á jörðinni.

Við viljum að þið gerið ykkur grein fyrir því að þið eruð andar og hafið tengsl við andaheiminn. Gefið ykkur smá stund á hverjum degi til þess að tengjast andlegum leiðbeinendum ykkar og hjálpendum, hugsið um ástvini ykkar sem horfnir eru yfir móðuna miklu, sendið þeim ástríkar hugsanir. Líka þeim sem á jarðsviðinu dvelja og þarfnast heilunar. En það almikilivægasta á meðan þið dveljið hér á jörðinni, er að upplifa hina jarðnesku tilveru. Þið verðið að leika ykkar hlutverk í því að viðhalda vegferð jarðarinnar. Þið verðið að gera ykkur grein fyrir því að það er undir sjálfum ykkur komið hvernig þið greiðið atkvæði ykkar, hvort þið mætið á fundi ykkar annað slagið, hvort þið eruð þátttakendur í málefnum heimastjórnar ykkar, takið þátt í veraldlegum verkefnum með öðru fólki. Og hafið það alltaf í huga að vegna þess að þið eruð spíritistar, vegna þess að þið berið þessa vitneskju með ykkur hið innra, þá getið þið leikið stærra og mikilvægara hlutverk en þeir sem alls enga þekkingu hafa í þessum efnum.

Við komum til ykkar á jarðsviðið annað slagið, tölum til ykkar í gegnum miðla, reynum að segja fáein orð sem gætu hjálpað, en okkur finnst alltaf að við séum að tala við túlka. Við getum ekki farið og staðið á torgum til þess að hrópa guðspjall okkur til fjöldans, við verðum að treysta á jarðneskar boðleiðir í því efni. Við viljum því að biðja ykkur öll að vera óhrædd við að tala um trú ykkar, ekki vera feimin við að viðurkenna að þið sækið spíritista samkomur og sýna með lífi ykkar hvað það merkir að vera spíritisti.

Okkur finnst að það sé mikilvægt fyrir ykkur að lifa eins eðlilegu lífi og mögulegt er, taka þátt í gleði jarðsviðsins, ábyrgð þess, og gera allt sem í ykkar valdi stendur til þess að bæta það, ekki bara í ykkar landi heldur öllum heiminum. Það er margvíslega erfiðleika við að eiga nú um stundir og úr öllum áttum dynja yfir fréttir af stríði og blóðbaði, hungri, sjúkdómum, öllum þessum hræðilegu hlutum sem hafa verið að eiga sér stað á síðustu árum. En það er áfangi sem jörð ykkar þarf að fara í gegnum og með því kallar hún svo mjög fram í sérhverri mannlegri veru kærleika, samúð og skilning.

Þið fenguð dæmi um þetta fyrir nokkrum árum þegar þið urðuð áskynja um hungursneyðina í Afríku og í öllu landi ykkar, í öllum hinum vestræna heimi, vaknaði fólk til vitundar og gaf allt sem það gat. Jafnvel enn þann dag í dag fer fólk frá ykkur á þessa staði til þess að þjóna þar, svo sem mögulegt er.

Munið alltaf að andinn er hið innra með ykkur, og sá andi er hluti af Guði, er eilífur, hefur alltaf verið og mun alltaf verða það, ekki í efnislíkamanum auðvitað, en á öðru tilverusviði.

Ekki takmarka trú ykkar við sunnudagana eða hringi ykkar, ekki tala bara um spíritismann við það fólk sem kemur á fundi til ykkar, talið um hann víðar, útbreiðið hann, sýnið að vegna þess að þið eruð spíritistar þá eruð þið betri maður, kona eða barn, og getið veitt meiri kærleika, og hjálp til þeirra sem þess þarfnast.

Það kemur mikill kraftur frá andaheiminum inn í heim ykkar, kraftur sem hjálpar ykkur að hjálpa öðrum. Það skiptir engu máli hvers konar starf þið stundið, ef þið vinnið það af alúð, gerið ykkar besta og sendið út kærleikshugsanir, þá eruð þið að ná því takmarki sem þið stefnduð að með komu ykkar til jarðarinnar. Þegar sú stund kemur að þið yfirgefið jarðsviðið, þá munið þið taka með ykkur persónuleika, anda, sem hefur bæði vaxið að visku og skilningi.

Við biðjum um blessun ykkur öllum til handa, heimilum ykkar og ástvinum, einnig heimi ykkar svo hann megi færast nær friði og ljósi.

Góða nótt og Guð blessi ykkur öll.